Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Áskell Heiðar lengst til vinstri ásamt stjórn LM 2018 ehf.
Áskell Heiðar lengst til vinstri ásamt stjórn LM 2018 ehf.
Mynd / LM 2018
Fréttir 16. febrúar 2017

Áskell Heiðar ráðinn framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna í Reykjavík 2018

Áskel Heiðar Ásgeirsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna í Reykjavík 2018.  

Í tilkynningu frá Landsmóti hestamanna kemur fram að Áskell Heiðar sé menntaður landfræðingur frá Háskóla Íslands, með diplómu í opinberri stjórnsýslu frá HÍ og MA gráðu í ferðamálafræði og viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum og Leeds Metropolitan University. 

„Áskell Heiðar hefur skipulagt fjölda viðburða hérlendis á undanförnum árum t.d. tónlistarhátíðina Bræðsluna, auk þess að stýra Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hólum í Hjaltadal sl. sumar.  Þá kennir hann einnig viðburðastjórnun og ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og Háskóla Íslands.

Mótið mun marka ákveðin tímamót í rekstri landsmóta, en þetta verður í fyrsta sinn sem Landssamband hestamannafélaga mun ekki sjá um mótið, heldur mun hestamannafélagið Fákur sjá alfarið um mótshaldið með dyggum stuðningi Reykjavíkurborgar líkt og á síðastu landsmótum sem haldin hafa verið í Reykjavík.  Fákur hefur stofnað sérstakt félag, LM 2018 ehf. og skipað því sérstaka stjórn sem mun stýra skipulagningu mótsins, en í henni sitja; Sigurbjörn Magnússon, formaður, Hjörtur Bergstað, varaformaður, Ingibjörg Guðmundsdóttir, ritari, og meðstjórnendur eru Katrín Pétursdóttir, Sigurbjörn Bárðarson, Haukur Baldvinsson, Áshildur Bragadóttir og Hrólfur Jónsson,“ segir í tilkynningunni.

Búist er við miklum fjölda gesta á landsmótið sem fram fer fyrstu vikuna í júlí 2018. „Landsmót er samvinnuverkefni þar sem mjög margir leggja hönd á plóg og hér í Reykjavík eins og víða annars staðar er til mikill mannauður og mikil þekking á svona mótahaldi, það verður mitt stærsta verkefni á næstu mánuðum að virkja þennan mannauð“ segir Áskell Heiðar í tilkynningunni.

Landsmótið í Reykjavík verður það 23. í röðinni en það fyrsta var haldið á Þingvöllum árið 1950.  Síðast fór Landsmót hestamanna fram í Reykjavík árið 2012.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...