Blómstrandi pylsutré
Fundur blómstrandi pylsutrjáa, Isicium panem, í frumskógum Brasilíu fyrr á þessu ár er líklega merkast grasafræðilega uppgötvun síðustu ára. Tegundin er þekkt en hafði ekki fundist í blóma áður og að sögn þeirra sem hafa prófað þá eru aldinin vel æt.
Allt frá því að aldin plöntunnar uppgötvuðust hafa grasafræðingar sérhæfðir í erfðaverkfræði séð tækifæri í að hér væri kominn fæða sem gæti sameinað kjötætur og veganista og unnið að því að kynbæta plöntuna til að hraða vexti hennar og auka uppskeru. Verkefnið hefur gengið vonum framar og mun ræktun á plöntunni hefjast í stórum stíl strax á þessu ári.
Vonir eru bundnar við plantan geti einnig orðið vinsæl nytjaplanta í görðum og það jafnvel hér á landi.