Hækkun á sérstöku innvigtunargjaldi á umframmjólk
Stjórn Auðhumlu hefur ákveðið að hækka gjald fyrir innvigtun á umframmjólk frá 1. apríl 2018 vegna aukinnar framleiðslu.
Í frétt á vef Auðhumlu segir að mjólkurframleiðslan hafi verið nokkuð meiri nú í byrjun árs en 2015 og 2016.
Í því ljósi hefur stjórn Auðhumlu, á fundi sínum 28. febrúar 2018, að sérstakt innvigtunargjald á umframmjólk verði hækkað í 52 krónur á lítrann frá 1. apríl 2018.