Ætla að veiða en klikkað að gera
Höfundur: Gunnar Bender
,,Jú, ég ætla alveg örugglega að veiða í sumar, alveg pottétt, fátt er skemmtilegra,“ sagði Jógvan Hansen er við hittum hann á hlaupum í vikunni.
Jógvan finnst gaman að renna fyrir fisk, en þegar hann flutti frá Færeyjum fyrir rúmlega 8 árum hafði hann lítinn áhuga á veiði.
,,Jú, ég fer í Langá á Mýrum, þar er gaman að veiða á hverju sumri og svo fer maður nokkrum sinnum í silung, silungsveiðin er gefandi.
Ég fór í Veiðivötn í fyrra og það er fallegt og gefandi að renna fyrir silunginn þar,“ sagði Jógvan enn fremur.