Góð veiði í Eyjafjarðará
Höfundur: Gunnar Bender
„Við byrjuðum daginn á Ármótabreiðu og þar landaði ég strax fiskum, einn 64 sentímetra og annar minni,“ sagði Benjamín Þorri Bergsson.
Hann var að veiða í Eyjafjarðará fyrr í sumar en veiðin hefur verið góð þar og veiðimenn verið að fá flottar bleikjur og góða sjóbirtinga líka og Benjamín heldur áfram:
„Síðan færðum við okkur á stað sem heitir Tjaldbakkar en þar eru nokkrir hyljir sem geyma oft mikið af stórri bleikju og skömmu seinna missti ég vænan fisk en var ekkert að svekkja mig á því. Ég var staðráðinn í að landa fiski þarna og ekki leið á löngu áður en ég setti í og landaði stærstu bleikju sem ég hef náð. Þetta var 69 sentímetra hængur sem vó 7,5 pund og tók Krókinn númer 14.
Þegar líða fór á daginn færðum við okkur neðst á svæðið en félagar mínir áttu enn eftir að landa fiski þennan dag en strax í öðru kasti niðri á Teljarabreiðu tók flott bleikja „Phesent tail“ hjá Ívari.
Við Eyþór fengum líka tvær flottar bleikjur og enduðum við fyrri vaktina með sex fiska á land en aðeins einn slapp. Seinni vaktin beið okkur svo og það þurfti ekki að spyrja að því að hann var á hjá Ívari eftir örfáar mínútur. Á land kom flott 60 sentímetra hrygna sem var sleppt að myndatöku lokinni. Við settum í og lönduðum hátt í 10 fiskum neðst á svæðinu enda mikið af fiski á þessum flotta stað sem er kallaður Teljarastrengur.
Þegar vaktin var að verða hálfnuð færðum við okkur aftur upp á Tjaldbakka og þar landaði Eyþór þriðju stórbleikju dagsins en hún vó 7 pund og mældist 66 cm. Við kláruðum svo þennan flotta og ævintýralega dag á þessu æðislega svæði niður í Teljarastreng. Lokatölur voru eitthvað í kringum 20 fiskar á land,“ sagði Benjamín enn fremur.