Rekstrarfélag Hótels Sögu tekið til gjaldþrotaskipta
Félagið Hótel Saga ehf., sem er rekstrarfélag Hótels Sögu, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Félagið er í eigu Bændasamtaka Íslands, sem og Bændahöllin ehf. sem rekur fasteignina. Gjaldþrot rekstrarfélagsins hefur hvorki bein áhrif á starfsemi BÍ, né afdrif fasteignarinnar.
Hótel Sögu var lokað 1. nóvember 2020 vegna rekstrarerfiðleika í kjölfar kórónuveirufaraldursins.