Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Í WorldFeng hefst nýtt skýrsluhaldsár 1. apríl ár hvert. Það þýðir að frá og með þeim degi er ekki hægt að skrá það sem gerðist árið á undan. Þess vegna er ekki lengur hægt að skrá í heimaréttinni folöld sem fæddust á árinu 2019.
Í WorldFeng hefst nýtt skýrsluhaldsár 1. apríl ár hvert. Það þýðir að frá og með þeim degi er ekki hægt að skrá það sem gerðist árið á undan. Þess vegna er ekki lengur hægt að skrá í heimaréttinni folöld sem fæddust á árinu 2019.
Fréttir 27. apríl 2020

Skráningar á folöldum og fleira tengt skýrsluhaldi

Höfundur: Halla Eygló Sveinsdóttir ráðunautur í hrossarækt - halla@rml.is

Þrátt fyrir að ástandið í þjóðfélaginu sé fordæmalaust eins og við höfum heyrt ansi oft á síðustu vikum kemur vorið með fuglasöng og grænum grundum. Fyrstu folöldin fara að fæðast og því rétti tíminn til að rifja svolítið upp um skýrsluhaldið í hrossarækt.

Í WorldFeng hefst nýtt skýrslu­haldsár 1. apríl ár hvert. Það þýðir að frá og með þeim degi er ekki hægt að skrá það sem gerðist árið á undan. Þess vegna er ekki lengur hægt að skrá í heimaréttinni folöld sem fæddust á árinu 2019, það er heldur ekki hægt að skrá fyljun hryssna frá því ári. Hafi það gleymst verður að senda grunnskráningarblöð og  stóðhestaskýrslur/fyljunarvottorð á pappír til Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) til að fá það skráð inn. Tekið er á móti skýrsluhaldspappírum á öllum starfsstöðvum RML en þeir eru aðallega skráðir á starfsstöðvunum á Akureyri og á Selfossi og því æskilegt að þeir sem senda pappíra með pósti sendi á heimilisföngin:

RML, Óseyri 2, 603 Akureyri eða RML, Austurvegi 1, 800 Selfoss.

Hvað er heimarétt WorldFengs (WF)?

Heimaréttin hýsir öll þau hross sem skráð eru á viðkomandi eiganda. Þar má á rafrænan hátt skila inn upplýsingum um hrossin. Þarna er hægt að hafa eigendaskipti, grunnskrá folöld, skrá afdrif, geldingu, fyl o.fl. Heimaréttin er verkfæri ræktanda til að halda utan um sitt skýrsluhald. Á heimasíðu RML er að finna leiðbeiningar um notkun á heimarétt WF.

Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla til að skrá folöld í gegnum heimarétt WF:

  • Ræktandi þarf að hafa aðgang að WF, hægt er að fá frían aðgang í gegnum hestamannafélög og aðildarfélög Félags hrossabænda.
  • Ræktandi þarf að vera skráður þátttakandi í skýrsluhaldi WF og ef viðkomandi er það hefur hann svokölluð föst númer. Föstu númerin eru þær þrjár tölur sem koma aftast í fæðingarnúmeri hrossa. Þessi númer eru tengd uppruna hrossanna og á meðan ræktandi kennir hross sín við sama uppruna hefur hann sömu númeraröð.
  • Fyljun þarf að hafa verið skráð á hryssurnar árið áður. Fylskráningar geta skilað sér inn í WF með misjöfnum hætti en alltaf þarf stóðhestseigandinn eða umsjónarmaður hestsins að samþykkja skráninguna.

Þessar leiðir eru til að skrá fyljun:

  • Stóðhestseigandinn skráir í sinni heimarétt hvaða hryssur voru hjá hestinum. Hryssueigandinn fær sjálfkrafa tilkynningu úr WF í tölvupósti þegar það hefur verið gert. Þetta gerist reyndar ekki nema hryssueigandinn hafi skráð rétt netfang inn í WorldFeng!
  • Hryssueigandi skráir fyljun á hryssurnar sínar í heimarétt sinni. Hryssur birtast síðan í heimarétt stóðhestseigandans og hann þarf að samþykkja að hryssurnar hafi verið hjá hestinum. Geri hann það ekki fer skráning hryssueigandans ekki í gegn. Það er því mjög mikilvægt að stóðhestseigendur fylgist með hvort hryssur eru að bætast inn á hestinn. Skráning hryssueiganda á fyljun er í raun tilkynning til stóðhestseiganda sem hann þarf síðan að staðfesta til að hún verið virk.
  • Stóðhestaskýrslu eða fyljunar­vottorði skilað inn til RML, undirrituðu af stóðhestseiganda eða umsjónarmanni hestsins. Ef hryssurnar hafa verið sónarskoðaðar þarf dýralæknir að votta niðurstöðurnar úr henni með sinni undirskrift.

Ef skráning á folöldum kemur ekki í gegnum heimarétt hryssueigandans  er hægt að senda grunnskráningar- eða örmerkjablöð til RML.

Hvað þarf til að gerast þátttakandi í skýrsluhaldi?

Hafa þarf samband við Ráðgjafar­miðstöð landbúnaðarins í síma eða tölvupósti. Ráðgjafarmiðstöðin úthlutar föstum númerum sem eru tengd við þann uppruna sem viðkomandi kennir hross sín við. Þrír síðustu stafirnir í fæðingarnúmeri hrossa eru þessi númer. Upplýsingar um hvernig fæðingarnúmer er upp­byggt má sjá hér á eftir.

Þátttakendum í skýrsluhaldi WF er ætlað að skrá fang hryssna, notkun stóðhesta, fædd folöld, geldingu, afdrif, eigandaskipti og umráðamann. Tilgangurinn með þessum skráningum er að gagnagrunnurinn gefi sem réttasta mynd af hrossastofninum hverju sinni.

Þeir sem ekki hafa aðgang að WF geta skilað inn gögnum til skráningar hjá RML. 

Eins og áður hefur komið fram eru félagsmenn í Landssambandi hestamannafélaga og Félagi hrossa­bænda með frían aðgang að WorldFeng í gegnum sín aðildarfélög. Félagsmenn þurfa hins vegar að hafa samband við sitt félag til að fá úthlutað aðgangi. Þeir sem eru félagsmenn í áður nefndum félögum eru hvattir til að verða sér út um aðgang hafi þeir hann ekki nú þegar.

Hvaða upplýsingar má lesa út úr fæðingarnúmeri hrossa?

Fæðingarnúmer (IS-númer) er í raun kennitala hestsins. Út úr fæðingarnúmerinu má lesa fæðingar­land, fæðingarár, kyn, landssvæði sem hrossið er upprunnið á og fast númer ræktanda. Eins og þegar hefur komið fram eru föst númer þau númer sem viðkomandi ræktanda er úthlutað um leið og hann gerist þátttakandi í skýrsluhaldi. Í meðfylgjandi töflum eru tekin tvö dæmi.

Það er því um að gera fyrir hesta­menn að setja sig aðeins inn í hvað má lesa út úr fæðingarnúmerinu. Snilldin í þessu kerfi er að ræktandinn getur ár eftir ár notað sömu númer á folöldin sem honum fæðast því alltaf breytist ártalið. Eins er hægt að nota sama númer á hryssu og hest, því kynin hafa sitt hvort númerið (l fyrir hest og 2 fyrir hryssu). Margir ræktendur hafa gaman af því að láta öll afkvæmi uppáhalds hryssna hafa sama númerið því þá er auðveldara að muna fæðingarnúmer afkvæma þeirra.

Geta fjölskyldur haft sameiginlega heimarétt?

Með tilkomu heimaréttar í WF gefst notanda tækifæri til að grunnskrá folöld, hafa eigandaskipti, skrá afdrif hrossa, skrá fyljun, setja inn myndir og ýmislegt fleira. Notendur ættu því ekki að gefa öðrum upp aðgangsorðin sín að WF frekar en aðgang sinn að heimabankanum eða rafrænum skilríkjum. Hins vegar er hægt að sækja um til RML að vera með sameiginlega heimarétt. Í því felst að sá sem er með aðganginn að WF tekur að sér að sjá um skýrsluhaldið fyrir t.d. maka og börn. Framkvæmdin á því er einfaldlega sú að prenta þarf út eyðublað sem er að finna á heimasíðu RML undir „Eyðublöð í hrossarækt“  og kallast „Umboð heimaréttar“. Eyðublaðið er fyllt út og umboðshafinn er sá sem hefur aðganginn að WF en hinir eru umboðsgjafar. Allir aðilar þurfa að skrifa undir þennan pappír og vottur þarf að kvitta fyrir að undirskrifir séu réttar. Foreldrar eða forráðamenn verða að skrifa undir fyrir hönd barna sem eru yngri en 18 ára og prókúruhafar fyrir hönd fyrirtækja. Þegar búið er að fylla út blaðið er það sent til skráningar hjá RML, þegar það hefur verið afgreitt koma öll hross sem skráð eru á umboðsgjafana inn í heimarétt umboðshafans.

Á heimasíðu RML er að finna ýmsan fróðleik varðandi skýrsluhaldið, meðal annars leiðbeiningar um notkun á heimarétt WF. Ef spurningar vakna varðandi skýrsluhaldið eða eitthvað annað er um að gera að setja sig í samband við starfsmenn RML og við reynum að leysa úr ykkar málum. Hægt er að hringja í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is, einnig er velkomið að senda tölvupóst beint á netfang undirritaðrar halla@rml.is. Að lokum óska ég ykkur öllum gleðilegs sumars.

Illa gekk að selja gærur á erlendum mörkuðum
Fréttir 20. desember 2024

Illa gekk að selja gærur á erlendum mörkuðum

Sala Sláturfélags Suðurlands (SS) á gærum sem féllu til í haust hefur gengið ill...

Heildverslanir og fyrirtæki í landbúnaði handhafar tollkvóta
Fréttir 20. desember 2024

Heildverslanir og fyrirtæki í landbúnaði handhafar tollkvóta

Innnes, Aðföng, Mata, LL42 og Háihólmi eru helstu handhafar tollkvóta á landbúna...

Vænlegt lífgas- og áburðarver
Fréttir 20. desember 2024

Vænlegt lífgas- og áburðarver

Í uppfærðri viðskiptaáætlun Orkídeu fyrir lífgas- og áburðarver í uppsveitum Árn...

Fólki stafar ekki hætta af neyslu fuglakjöts
Fréttir 19. desember 2024

Fólki stafar ekki hætta af neyslu fuglakjöts

Engin ný tilfelli af fuglainflúensu hafa greinst í alifuglum frá því að sýking m...

Breytileikinn T137 fannst á Grímsstöðum
Fréttir 19. desember 2024

Breytileikinn T137 fannst á Grímsstöðum

Á Grímsstöðum 4 í Mývatnssveit hafa nýlega fundist tveir gripir með arfgerðarbre...

Bjart er yfir Miðfirði
Fréttir 19. desember 2024

Bjart er yfir Miðfirði

Bændurnir á bæjunum Bergsstöðum og Urriðaá í Miðfirði fengu heimild til að kaupa...

Reykhólahreppur tekur þátt í Brothættum byggðum
Fréttir 18. desember 2024

Reykhólahreppur tekur þátt í Brothættum byggðum

Nýverið var samningur um byggðaþróunarverkefni Brothættra byggða undirritaður mi...

Mánaðarleg upplýsingagjöf
Fréttir 18. desember 2024

Mánaðarleg upplýsingagjöf

Hagstofa Íslands hyggst frá næstu áramótum birta mánaðarlega upplýsingar um fjöl...