Farmallinn á Íslandi sjötugur
Fyrstu Farmall A dráttarvélarnar komu til landsins fyrir 70 árum, eða þann 18. febrúar 1945 með flutningskipinu „Gyda“.
Þóroddur Már Árnason, vélvirki í Neskaupstað, hefur tekið saman gögn um þessar vélar sem ekki hafa áður verið birt opinberlega. Hann sagði í samtali við Bændablaðið að eftir að bækur Sambands íslenskra samvinnufélaga (SÍS) voru opnaðar fyrir nokkrum misserum, þá hafi hann látið afrita skýrslur um dráttarvélainnflutning Sambandsins. Er samantekt Þórodds eftirfarandi:
25 vélar og kostaði hver þeirra 5.960 krónur
Í þessari fyrstu sendingu árið 1945 voru 25 vélar með þyngdarklossum og reimskífu. Kostuðu vélarnar 5.960 krónur.
Öllum vélunum fylgdi sláttuvél
Öllum þessum vélum fylgdi sláttuvél af gerðinni 16A. Flestum vélunum fylgdi plógur af gerðinni IH192A. Rúmum helmingi vélanna fylgdi diskaherfi, ýmist af gerð, 10A eða No.17-12 diska. Plógnum var lyft með pústinu og var kúturinn einatt notaður til að lyfta heyýtum sem smíðaðar voru á marga Farmall A. Með þessum fyrstu Farmall A dráttarvélum hófst í raun dráttarvélavæðing íslenskra sveita. Næsta sending, 50 stk., kemur svo í apríl. Alls flutti Sambandið inn 174 Farmalvélar þetta ár. Með startara og ljósum koma Farmalarnir ekki fyrr en 22.6 1946. 100 fyrstu Farmalarnir er komu það ár, voru framleiddir 1945.
Búinn að rekja saman raðnúmer og kaupendur nokkurra véla
Þóroddur er búinn að rekja saman raðnúmer (serial no.) og kaupendur á sjö af 25 Farmall A dráttarvélunum sem komu til landsins 1945. Hin raðnúmerin af vélum úr sömu sendingu eru birt hér til hliðar. Þeir sem hafa vélar með þessum númerum eða vita um kaupendur þeirra og sögu geta haft samband við Þórodd Má Árnason í Neskaupstað í síma 477-1618 eða sent honum upplýsingar á netfangið mar2@simnet.is.