Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Nú árið er liðið
Mynd / Bbl.
Lesendarýni 30. desember 2022

Nú árið er liðið

Höfundur: Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands

Félagasamtök bænda eiga sér langa sögu og sé slóðin rakin hefst hún á fyrri hluta nítjándu aldarmeð stofnun „Suðuramtsins húss- og bústjórnarfélag“. Síðan þá hafa samtökin þróast með samfélaginu.

Vigdís Häsler.

Vorið 1995 var haldið fyrsta Búnaðarþing sameinaðra Bændasamtaka Íslands.

Á þinginu var rekinn endahnútur á sameiningarferli Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda sem hófst nærri tveimur árum áður. Markmiðið með breytingunum á sínum tíma var að einfalda félagskerfi bænda. Í umfjöllun í Frey frá þessum tíma var ritað að með sameiningunni fengju þessir nýju aðilar „fulla möguleika á að draga fram í dagsljósið það sem þeir teldu að fyrri stjórnendum hafi farist miður en skyldi“.

Það er engum hollt að dvelja of lengi í fortíðinni. Þá er það jafnframt mín einarða skoðun að í uppbyggingar- og umbótaferli sé til lítils að benda á það sem miður hefur farið, heldur sé það skynsamlegra að eyða orku í að byggja upp og horfa fram á við, eða eins og pabbi minn segir alltaf: „Það eru engin vandamál, bara lausnir.“ Þetta er einföld lífsspeki sem ég hef tamið mér en það þarf þrautseigju til að fylgja umbótum staðfastlega eftir, og það í svo rótgrónum samtökum sem Bændasamtökin eru. Umbætur nást hins vegar ekki fram með því að skipta eingöngu um „höfuðið á búknum“, því horfa þarf inn á við. Fyrir samtökin og hagsmunagæslu landbúnaðarins hefur það verið lykilatriði að fá fólk til starfa sem er reiðubúið að berjast fyrir heildarhagsmuni landbúnaðarins, hagsmuni sem þau brenna fyrir.

Stjórn og starfsfólk Bændasamtaka Íslands hafa á þessu ári svo sannarlega ekki setið auðum höndum. Starfið í skipulagðri hagsmunabaráttu fer þó oft fram með þeim hætti að umfang og vinnuframlag kemur iðulega ekki fyrir sjónir nærri 80% af tímanum. Einhverjir telja að hagsmunabaráttan sé best rekin í andsvörum og gildishlöðnum setningum í fjölmiðlum eða í athugasemdum samfélagsmiðla. Síðan eru aðrir sem halda því fram að hagsmunabaráttan sé eins og kafbátaárás, þaulskipulögð í reykfylltum palesanderklæddum skrifstofum.

Hvorugt er raunin. Starfsfólk og forystufólk samtakanna funda í hverri viku þar sem málefni landbúnaðarins eru rædd, starfsskilyrði, framtíðarsýnin og það sem helst ber á góma í samfélagsumræðunni og á vettvangi fjölmiðla og stjórnmálanna. Á þessum fundum er fólk saman komið sem brennur fyrir málefnum atvinnugreinarinnar og þráir ekkert heitar en að sjá hana vaxa og dafna til framtíðar. Málum af þessum fundum og af þeim fjölmörgu samtölum sem við eigum við félagsmenn er síðan fylgt eftir af starfsfólki samtakanna til þess að tryggja að málefnum alls landbúnaðar sé sinnt, í stóru sem og smáu. Þannig koma lögfræðingar og sérfræðingar samtakanna að fjöldamörgum verkefnum og umsögnum á hverju starfsári sem varða starfsskilyrði landbúnaðarins og sitja í fjölmörgum starfshópum. Af einstökum verkefnum sem vert er að minnast á árinu, má nefna Íslenskt staðfest og heildarendurskoðun á tryggingavernd bænda. Á nýju ári er ráðgert að þessi verkefni muni verða mun fyrirferðarmeiri svo allir bændur geti notið góðs af. Þá má einnig nefna Bændageð, sálgæsluverkefni sem hlaut styrk frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og Geðhjálp og er ætlað að vinna fræðslu og forvarnir bændum til handa. Því verkefni erum við afskaplega stolt af og starfsfólk hefur unnið hörðum höndum að gerð þess síðustu mánuði. Stundum náum við árangri, stundum ekki, en aldrei gefumst við upp. Það var aldrei og verður aldrei í boði.

Í upphafi ársins var ljóst að atvinnugreinin stóð, og stendur enn, frammi fyrir fordæmalausum hækkunum á aðföngum til framleiðslu landbúnaðarfurða. Þessar hækkanir eru þó ekki bundnar við Ísland en stjórnvöld víða í heiminum fóru á árinu að huga að aðgerðum til að bregðast við þeirri grafalvarlegu stöðu sem upp var komin. Íslensk stjórnvöld sýndu stöðunni einnig mikinn skilning og tryggðu bændum 700 millj. kr. til að koma til móts við hækkun áburðarverðs. Þá samþykkti ríkisstjórnin að styðja við bændur með 2.460 millj. kr. framlagi samkvæmt tillögum spretthópsins sem matvælaráðherra skipaði í byrjun sumars. Var greiðslum þessum ætlað að veita bændum tímabundinn stuðning en jafnframt að horft yrði til þess að auka viðnámsþrótt greinarinnar og tryggja eftir föngum fæðuöryggi þjóðarinnar.

Á árinu hefur okkur jafnframt tekist að fjölga talsmönnum atvinnugreinarinnar, fá inn í umræðuna samtal um neyðarbirgðahald, skipulag ræktarlands, eflingu grænmetisframleiðslu og kornræktar, jarðræktarrannsóknir, lífræna framleiðslu og aukið fæðuöryggi þjóðar. Það verður að teljast mikið afrek að skapa slíkan meðbyr með atvinnugreininni og þeim sem við hana starfa, sem og að upplýsa almenning um afleiðingar þess ef aðgangur aðfanga og dreifileiðir rofna til landsins.

Fyrir um ári síðan skrifuðu ríkið og Félagsstofnun stúdenta undir samning við félag í eigu Bændasamtaka Íslands um kaup á Hótel Sögu. Skrifstofa Bændasamtakanna hafði verið staðsett í húsinu í yfir 60 ár. Fasteignin var að fullu afhent nýjum eigendum 1. apríl sl. og fluttu samtökin í nýtt húsnæði í ágúst sl. og eru nú skrifstofur samtakanna staðsettar á 4. hæð að Borgartúni 25 í Reykjavík. Þar unir starfsfólkið sér vel í opnu skrifstofurými þar sem við náum fram aukinni samlegð og skilvirkni innan hópsins í þeim fjölbreyttu verkefnum sem við fáumst við á hverjum degi.

Að lokum vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim sem sóttu Landbúnaðarsýninguna í Laugardalshöll, sem fram fór um miðjan október. Það skiptir okkur sem störfum innan greinarinnar öllu að neytendur séu upplýstir um innihald og uppruna íslenskra landbúnaðarafurða, vegna þess að í því felst styrkur atvinnugreinarinnar.

Fyrir hönd starfsfólks Bændasamtakanna óska ég þér, kæri lesandi, gleðilegra jóla. Megi nýja árið verða þér og þínum farsælt og gjöfult.

Með vinsemd og virðingu,
Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands

Kartaflan
Lesendarýni 16. júlí 2024

Kartaflan

Hvað vitum við um kartöfluna? Þessa nytjajurt sem heitir á fræðimáli Solanum tub...

Hraunflóðavarnir og þekking
Lesendarýni 16. júlí 2024

Hraunflóðavarnir og þekking

Nú eru í gangi umfangsmiklir jarðeldar á Reykjanesskaga, hafa þegar verið í gang...

Ekki lausn fyrir Landeyjahöfn - Síðari hluti
Lesendarýni 5. júlí 2024

Ekki lausn fyrir Landeyjahöfn - Síðari hluti

Í síðasta eintaki af Bbl. birtist grein um það hvernig öldusveigjan umhverfis Ve...

Dýravelferð og hugmyndafræði einnar heilsu: ábyrgð okkar allra
Lesendarýni 2. júlí 2024

Dýravelferð og hugmyndafræði einnar heilsu: ábyrgð okkar allra

Velferð dýra er ófrávíkjanleg krafa siðmenntaðs samfélags, hvort sem um ræðir gæ...

Framleiðsla og vinnsla búvara falla ekki undir EES-samninginn
Lesendarýni 24. júní 2024

Framleiðsla og vinnsla búvara falla ekki undir EES-samninginn

Fyrir röskum þremur árum ritaði greinarhöfundur þrjár greinar um landbúnað og sa...

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda
Lesendarýni 21. júní 2024

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda

Ágætu bændur. Í Bændablaðinu þann 16. maí sl. reifaði ég í bréfi til ykkar áhygg...

Af heimanautum og sæðinganautum
Lesendarýni 21. júní 2024

Af heimanautum og sæðinganautum

Mikil notkun heimanauta hefur um langa hríð verið eitt helsta umræðuefni og þræt...

Réttindabarátta sjávarbyggða og strandveiðimanna
Lesendarýni 21. júní 2024

Réttindabarátta sjávarbyggða og strandveiðimanna

Strandveiðitímabilið hófst í byrjun maí. Mikil veiði hefur verið enda mikið af f...