Systurnar Sunna, Ríma Rún og Jökla besti ræktunarhópurinn
Höfundur: Arnheiður Guðlaugsdóttir
Þær voru sigursælar, systurnar Sunna, Ríma Rún og Jökla, sem voru valdar besti ræktunarhópur sunnudagsins á alþjóðlegri sýningu Hundaræktarfélags Íslands.
Hún var haldin í Reiðhöllinni í Víðidal helgina 4.–5. mars síðastliðinn.
Ræktandinn er Brynhildur Þorkelsdóttir sem er hér lengst til hægri en ræktunin er Reynisvatns. Systurnar eru Labrador en móðir þeirra er Reynisvatns-Kilja sem er í eigu Brynhildar og faðir er Bassi í eigu Torfa Sigurjónssonar.
Systurnar búa í Mosfellsbæ utan Jökla sem er sveitahundur og býr í Bitrufirði á Ströndum.