Verk loks hafið eftir 36 ára undirbúning
Höfundur: Hörður Kristjánsson
Framkvæmdir eru komnar á fullt við gerð Dýrafjarðarganga sem koma eiga í stað erfiðs fjallvegar um Rafnseyrarheiði á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.
Jón Gunnarsson samgönguráðherra sprengdi hátíðarsprengingu Dýrafjarðarganga í gangamunna Arnarfjarðarmegin með aðstoð Hreins Haraldssonar vegamálastjóra þann 14. september síðastliðinn, en Vestfjarðagöng voru einmitt vígð á sama degi árið 1996. Verkefnið EiðiÞverá á sunnanverðum Vestfjörðum var líka vígt á sama degi árið 2015. Hugsanlega verða Dýrafjarðargöng svo opnuð 14. september 2020.
Verktakarnir Suðurverk og Metrostav frá Tékklandi vinna verkið. Samningar við verktaka hljóða upp á um 9 milljarða króna og heildarkostnaður verður talsvert meiri.
Þegar Jón Gunnarsson þrýsti á hnappinn sem kom sprengingunni af stað varð honum að orði að nú rynnu ekki eingöngu öll vötn til Dýrafjarðar heldur líka fullt af peningum.
Við gangagerðina þarf að nota mikið af sementi, m.a. við svokallaða grautun við bergþéttingar. Sementsílóin við gangamunna í Arnarfirði taka líka slatta, eða heil 700 tonn.
Hugmyndin að Dýrafjarðargöngum er búin að vera lengi á teikniborði Vegagerðarinnar. Var þetta m.a. eitt af fyrstu verkum Hreins Haraldssonar, núverandi vegamálastjóra, við störf hjá Vegagerðinni árið 1981, að kanna aðstæður fyrir Dýrafjarðargöng og hvar best væri að fara í gegn. Þrjú ár tekur að klára verkið og því líða 39 ár frá því hann kannaði aðstæður á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar verður lengd ganganna í bergi áætluð 5.301 metri, vegskálar 144 m og 156 m, eða samtals 300 metrar. Heildarlengd ganga með vegskálum er áætluð 5.601 metri og breidd ganganna verður 8 metrar en þverskurðarflatarmál er 53 m2.
Hæð vegskálaenda er 35 m yfir sjávarmáli (y.s) í Arnarfirði og 67 m y.s. í Dýrafirði. Gólf í göngum fer mest í 90 m y.s. í miðjum göngunum og er mesti lengdarhalli 1,5%. Þversnið er samkvæmt norskum reglum og nefnist T8.
Í göngum verða 10 útskot, þar af fjögur snúningsútskot. Inni í göngunum verða fjögur steypt tæknirými og tvö lítil fjarskiptahús utan ganga. Göngin verða malbikuð með steyptum upphækkuðum öxlum. Nýr vegur verður byggður beggja vegna gangamunna.
Nýir vegir eru u.þ.b. 3 km Arnarfjarðarmegin og 4,8 km Dýrafjarðarmegin, samtals um 7,8 km auk tenginga. Vegurinn verður 8 m breiður með 7 m akbraut. Rafmagnsbúnaður og öryggisbúnaður er fjölþættur, mest af búnaðinum er í fjórum tæknirýmum meðal annars fjórar spennistöðvar. Símaskápar eru einu skáparnir sem festir eru á veggi ganga, allir aðrir rafbúnaðarskápar eru í tæknirýmum.
Loftræsiblásarar, 1 m í þvermál, eru 16 og eru tveir og tveir saman á fjórum svæðum við tæknirýmin inni í göngunum.