Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Líf&Starf 31. október 2018
Höfundur: Hörður Kristjánsson
Fjölskyldufyrirtækið Villimey slf. á Tálknafirði er orðið vel þekkt sem framleiðandi á hágæða húðvörum hér á landi. Á landbúnaðarsýningunni í Laugardal voru þær Lív Bragadóttir og Aðalbjörg Þorsteinsdóttir að kynna vörur fyrirtækisins þegar blaðamann Bændablaðsins bar að garði.
„Ég er búin að vera með þessar vörur og þróa í 15 ár, fyrst fyrir fjölskylduna áður en við settum vörurnar á markað fyrir 13 árum,“ segir Aðalbjörg Þorsteinsdóttir.
„Upphaflega var þetta bara ætlað fyrir okkur sjálf, en svo fór fólk að falast eftir þessu út um allt land þegar það heyrði af virkninni.“
Smyrslin frá Villimey eru lífrænt vottuð af Vottunarstofunni Túni og unnin úr margvíslegum jurtum sem tínd eru í Tálknafirði og Arnarfirði.
„Salan á þessum vörum hefur gengið vel og þær auglýsa sig svolítið sjálfar með virkninni. Við erum líka búin að láta Matís rannsaka allar okkar vörur með tilliti til virkni efnanna. Þar höfum við fengið staðfestingu á að þær virka eins og við höfum verið að segja. Þetta eru því ekki bara okkar fullyrðingar, heldur getum við stutt þær með rannsóknum.“
Sannkallað fjölskyldufyrirtæki
– Eru þið mörg að vinna í kringum þessa framleiðslu?
„Það er bara fjölskyldan. Ég á fjórar dætur og síðan fjölgar í kringum okkur svo þetta er orðið öflugt lið.“
Aðalbjörg segist hafa leitað sér upplýsinga í gamlar heimildir og reynslu fólks af virkni jurta. Smám saman hafi hún fundið réttu blöndurnar til að fást við ýmiss konar mein, eins og bólgur, brunasár og annað. Vörutegundirnar eru nú fjölmargar eins og Vöðva- og Liða Galdur, Fóta galdur, Vara galdur, Munnangurs Galdur, Hvannar galdur, Berja galdur og Birkigaldur og hver með sína virkni.
„Það skiptir mjög miklu máli hvenær á vaxtarskeiðinu maður tínir jurtirnar upp á virknina að gera. Það skiptir máli upp á kraftinn sem felst í jurtunum. Einnig skiptir máli hvaða hluta jurtanna maður er að nota. Þá nota ég ýmist blöð, blóm eða rætur, allt eftir því hvaða virkni ég er að sækjast eftir. Maður sér það á vaxtarstiginu hvernig jurtirnar koma til með að virka.“
Veðurfarið hefur mikil áhrif
– Skiptir þá veðurfarið ekki líka miklu máli?
Jú, algjörlega. Ég hef aldrei lent í öðru eins ástandi og í sumar. Oft hef ég fengið köld vor þar sem fyrstu jurtirnar lifna frekar seint, en þær sem eiga að vakna til lífsins í júní og júlí eru þá yfirleitt á réttum tíma. Í sumar voru hins vegar allar jurtir seint á ferðinni.
Annars eru jurtirnar hér á Íslandi mjög kraftmiklar, þær vaxa hratt þegar þær taka við sér og hafa stuttan vaxtartíma vegna okkar stutta sumars. Að því leyti erum við mjög heppin og svo er svæðið sem við erum að tína jurtirnar á mjög hreint.
Líf&Starf 9. október 2024
Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...
Líf&Starf 14. ágúst 2024
Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...
Líf&Starf 2. júlí 2024
Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...
Líf&Starf 10. maí 2022
Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...
Líf&Starf 4. maí 2022
Lesning fyrir heilabilaða
Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...
Líf&Starf 19. apríl 2022
Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!
Nú hefur leikfélag Hólmavíkur sett upp farsann Bót og betrun eftir Michael Coone...
Líf&Starf 28. mars 2022
Ef væri ég gullfiskur!
Spéfarsinn „Ef væri ég gullfiskur“ eftir Árna Ibsen, í flutningi leikfélags Umf....
Líf&Starf 16. mars 2022
Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði
Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði frumsýndi leikritið „Ekki um ykkur” eftir Gun...
22. nóvember 2024
Fjölbreyttir vinnudagar
22. nóvember 2024
Aldrei fleiri umsóknir um nýliðunarstuðning
22. nóvember 2024
Lán að ekki fór verr
22. nóvember 2024
Hlaðvarp um landbúnað í aðdraganda kosninga
22. nóvember 2024