Bubba
Hannyrðahornið 24. september 2024

Bubba

Höfundur: Hönnun: Guðbjörg Björgvinsdóttir Útfærsla uppskriftar: Margrét Jónsdóttir

Stærðir: XS S M L XL XXL.

Bubba

Yfirvídd: 88 94 100 111 120 128.

Efni og áhöld: 400-450-450-500- 550-600 g Þingborgarlopi í aðallit, 50 g af hverjum lit í mynstur. Sokkaprjónar 4 mm og 5 mm. Hringprjónar 4 mm 40 og 80 cm langir, hringprjónar 5 mm 40, 60 og 80 cm langir.

Á opinni peysu: Heklunál 4 mm, 8-10 tölur eða rennilás.

Prjónfesta: 14 l og 23 umf í sléttu prjóni = 10 x 10 cm

Önnur prjónastærð getur hentað, allt eftir því hvort prjónað er fast eða laust, finnið það út með því að prjóna prufu. Prjónað er úr plötulopanum tvöföldum. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Stroff er prj 1 sl og 1 br og 3 hver umf sl eða stroffgerð eftir því sem hver vill.

Bolur: Fitjið upp á heilli peysu 124-132-140-156-168-180 l í mynsturlit að eigin vali á 4 mm 80 sm hringprjón, skiftið yfir í aðallit og prj stroff í hring 6-8 sm. Á opinni peysu fitjið upp 127-135-143-159-171-183 l og prjónið stroff fram og til baka 6-8 sm. Tengið í hring að stroffi loknu og fitjið upp 2 aukalykkjur, þær eru prj brugðnar alla leið að hálsmáli. Prjónað sl uns bolur mælist 38-46 sm. (Lengd á bol er smekksatriði, mælið viðkomandi og metið bolsídd).

Á dömupeysu er fallegt að gera ,,mitti“ á peysuna með því að taka úr á bol. Setjið merki í báðar hliðar, takið úr 2 l hvoru megin, *prj 2 l saman, prj 1 l, prj 2 l saman*. Fyrst er tekið úr er bolur mælist 8-12 sm og síðan 2x aftur með 5 sm á milli. Alls eru teknar úr 12 l. Prj 5 sm, þá er aukið út aftur samsvarandi og með sama millibili og tekið var úr og endað með sama lykkjufjölda. Mælið ykkur og metið hvað þið viljið hafa bolinn síðan og hvar þið viljið að úrtaka byrji.

Ermar: Fitjið upp 28-32-36-36- 40-42 l í mynsturlit að eigin vali á 4 mm sokkaprjóna, skiftið yfir í aðallit og prjónið stroff í hring 6-8 sm.

Skiptið yfir á 5 mm sokkaprjóna þegar stroffi er lokið og aukið strax um 2 l undir miðri ermi, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 lykkju fyrir síðustu l í umf). Endurtakið aukningu 7-8-8- 9-9-9 x upp ermi, með u.þ.b. 8 umf á milli, þar til 44-50-54-56-60-62 l eru á prjóninum.

Skiptið yfir á stutta 5 mm hringprjóninn á u.þ.b. miðri ermi. Gott er að nota prjónamerki til að merkja þar sem aukið er út. Prjónið uns ermi mælist 44-52 sm. (Mælið handlegg og metið hve ermin á að vera löng).

Axlastykki á heilli peysu: Sameinið nú bol og ermar á langa hringprjóninn nr 5. Setjið 4-5-5-5- 6-6 síðustu l og 5-5-5-6-6-6 fyrstu l á báðum ermum á prjónanælu. Setjið 9-10-10-11-12-12 af bol á prjónanælu þar sem umferð byrjar vinstra megin á bol. Prjónið fyrri ermina við bolinn 35-40-44-45- 48-50 l, prjónið næstu 53-56-60- 67-72-78 l af bol og setjið næstu 9-10-10-11-12-12 l á hjálparprjón. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hana. Prjónið síðan 53-56-60-67-72-78 l af bol, þá eru 176-192-208-224-240-256 l á prjóninum.

Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 64-72 l eru eftir á prjóninum.

Þáerskiptá4mm40sm hringprjón og prj 5-7 sm stroff og að síðustu 4 umf sl, fellt laust af. Hafa má hálsmál hvernig sem hentar, tvöfalt, einfalt, lágt eða stóran kraga. Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum.

Axlastykki á opinni peysu: Prj 27-29-31-34-36-40 l af bol að framan, umf byrjar næst við brugðnu l, setjið 9-10-10-11-12- 12 næstu l á prjónanælu og prj fyrri ermina við 35-40-44-45-48-50 l og svo 55-57-61-69-75-79 l á bol, setjið næstu 9-10-10-11-12-12 l af bol á prjónanælu og gerið eins með hina ermina og að síðustu 27-29-31- 34-36-40 l af bol.

Þá eiga að vera á prjóninum 179-195-211-227-243-259 l. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til u.þ.b. 64-72 l eru eftir á prjóninum. Fellið af aukal 2 sem prj voru brugðnar upp.

Þá er skipt á 4 mm 40 sm hringprjón og prj fram og til baka 5-7 sm stroff og að síðustu 4 umf sl. Fellið af. Hafa má hálsmál hvernig sem hentar, tvöfalt, einfalt, lágt eða stóran kraga. Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum.

Listar: Saumið í vél með beinu þéttu spori og samlitum tvinna í brugðningu að framan sitt hvoru megin, sem næst slétta prjóninu.

Gott er að sauma tvisvar hvoru megin. Klippið upp á milli saumanna. Snúið réttunni á peysunni að ykkur og notið heklunálina til að taka upp lykkjur í hneppulista þvert á prjónið. Krækið í bandið með heklunálinni í gegnum lykkjurnar, en sleppið alltaf fjórðu hverri umferð, það er ágætis þumalputtaregla, þá er listinn passlega langur. Færið lykkjurnar jafnóðum yfir á 4 mm hringprjón 80 sm langan. Listinn á að ná að slétta prjóninu á kraga.

Prjónið stroff 2-3 umf ef það á að setja rennilás en 5-6 umf ef setja á tölur og gerið þá hnappagöt með jöfnu millibili á annan boðunginn. Passið að affellingin sé mátulega strekkt. Til að fela sárið innan á eftir saumaskapinn, er gott að hekla eina umf. af fastahekli yfir það og varpa því svo niður með einföldu spori.

Eins er hægt að hekla framan á boðunginn, eina umf af fastahekli ef setja á rennilás en 2-3 umf fyrir tölur og þá eru sett hnappagöt á annan boðunginn með jöfnu millibili. Ef heklað er á boðunginn notið þá heklunál 4.5 mm og heklið í aðra hverja umf.

Ef settur er rennilás er mælt fyrir honum eftir þvott og hafður u.þ.b. 4 sm styttri en boðungurinn mælist. Þræðið hann á og passið að mynstur standist á. Ef hann er saumaður á í saumavél er gott að sauma hann í sömu átt beggja megin og byrja þar sem mynstur byrjar og sauma að hálsmáli og eins þegar saumað er niður. Með þessari aðferð gengur betur að láta mynstur stemma en ef saumað væri sitt í hvora áttina.

Þvottur: Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris.

Hönnun: Guðbjörg Björgvinsdóttir Útfærsla uppskriftar: Margrét Jónsdóttir

Bubba
Hannyrðahornið 24. september 2024

Bubba

Stærðir: XS S M L XL XXL.

Manstu vorið?
Hannyrðahornið 10. september 2024

Manstu vorið?

Þessi fallega peysa með gatamynstri á ermum er prjónuð úr DROPS Alpaca og DROPS ...

Búðarháls
Hannyrðahornið 27. ágúst 2024

Búðarháls

Uppskrift að vesti fyrir Ullarviku á Suðurlandi 2024

Dömupeysa
Hannyrðahornið 13. ágúst 2024

Dömupeysa

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með t...

Hölluklútur – úr íslenskri ull
Hannyrðahornið 9. júlí 2024

Hölluklútur – úr íslenskri ull

Hölluklútar af ýmsu tagi.

Grifflur fyrir frjálsa fingur
Hannyrðahornið 11. júní 2024

Grifflur fyrir frjálsa fingur

Stærðir: S M L Efni: 60 gr tvöfaldur lopi frá Þingborg eða Ístex. Sokkaprjónar 3...

Billy Jean
Hannyrðahornið 28. maí 2024

Billy Jean

Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað í hring í stroffprjóni, neða...

Önnu-peysa
Hannyrðahornið 15. maí 2024

Önnu-peysa

Stærðir: S M L XL Yfirvídd: 94 100 111 12