Kardimommubærinn á fjalirnar í Eyjafjarðarsveit
Eins og áður hefur komið fram hér á síðum Bændablaðsins á Freyvangur sér langa sögu bæði samkomuhúss og leikhúss en það hefur iðað af lífi um árabil, eitt athafnamesta áhugaleikhús landsins.
Samkvæmt dagblaðinu Degi árið 1957 er „Sjónleikurinn Ráðskona Bakkabræðra sýndur að Freyvangi, Öngulsstaðahreppi“ auk þess sem ónefnd hljómsveit lék þar að loknum sjónleik. Nokkrum árum síðar, eða snemma í apríl árið 1962, funduðu áhugamenn í samkomuhúsinu með það fyrir augum að stofna leikfélag í Öngulsstaðahreppi sem síðar var nefnt Freyvangsleikhúsið. Yfir árin hefur leikfélagið fjórum sinnum hlotið þann heiður að sýning þeirra er valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin; Kvennaskólaævintýrið 1995, Velkomin í Villta vestrið 1998, Vínland 2009 og Góði dátinn Svejk árið 2011.
Þessa dagana standa leikarar Freyvangs í æfingum fyrir sýningu verksins ástsæla sem allir þekkja, Kardimommubæjarins, undir stjórn leikstjórans Ólafs Jens Sigurðssonar. Ólafur hefur leikstýrt félagsmönnum áður með miklum ágætum og var m.a. leikstjóri verksins Vínlands er fór á fjalir Þjóðleikhússins við mikið lof – kröftugur og litríkur söngleikur, saminn af Helga Þórissyni, sem nú er í hlutverki Kaspers, eins ræningjanna og bræðranna þriggja, Kaspers, Jespers og Jónatans.
Til gamans má geta að bræður Helga, Ingólfur og Bergsveinn Þórissynir, leika þá Jesper og Jónatan, en eins og flestir vita ógna þeir þremenningar bæjarbúum í fylgd ljónsins síns sísvanga – sem elskar mjólkursúkkulaði.
Önnur ógn bæjarins, hin ráðríka og skapstygga Soffía frænka, fléttast inn í líf þeirra er þeir ákveða að ræna henni til þess að sjá um húsverkin fyrir sig ... sem kemur svo í ljós að er frekar vanhugsað hjá þeim.
Kardimommubærinn er þó yndislegur bær þar sem margar skemmtilegar persónur stinga upp kollinum, en söguna og söngvana samdi Thorbjörn Egner (12. des. 1912–24. des. 1990) norskur rithöfundur, leikskáld, myndskreytir og tónskáld auk þess sem hann hannaði búninga og leikmyndir við eigin leikrit.
Alls eru þeir sem koma að verkinu ríflega fimmtíu talsins, bæði börn og fullorðnir, og því nóg um að vera, enda iðar Kardimommubærinn ávallt af lífi. Stefnt er á að sýningarhald hefjist um mánaðamótin febrúar/mars, að öllu óbreyttu