Sveitasæla í Skagafirði
Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin Sveitasæla í Skagafirði verður sett laugardaginn 23. ágúst n.k. klukkan 10.00. Á sýningunni koma saman vélasalar, landbúnaðarfyrirtæki, handverksfólk og bændur og kynna það nýjasta í vélageiranum og landbúnað ásamt handverksvörum.
Sunnudaginn 24.ágúst verða eftirfarandi bú opin almenningi til skoðunar loðdýrabúið Loðfeldur á Gránumóum, skógræktarbýlið Krithóll, kúabúið Glaumbær 2, ferðaþjónustubýlið Lýtingsstaðir og gróðurhúsin á Starrastöðum.