Íslenskt búvörumerki og mælaborð landbúnaðarins
Í endurskoðuðum rammasamningi á milli ríkis og bænda, um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins, sem staðfestur var með undirskriftum á fimmtudaginn er kveðið á um að svokallað mælaborð landbúnaðarins verði sett á fót og að Bændasamtök Íslands hafi umsjón með útfærslu á sérstöku búvörumerki fyrir íslenskar búvörur.