Hvort er auðveldara að banna veirur eða skipta um skoðun?
Ég held að við séum öll sammála um að hægt er að skipta um skoðun. Og ef reynslan kennir að það gæti verið skynsamlegt þá er einboðið að gera það. En er hægt að banna veirur?
Ég held að við séum öll sammála um að hægt er að skipta um skoðun. Og ef reynslan kennir að það gæti verið skynsamlegt þá er einboðið að gera það. En er hægt að banna veirur?
Í síðasta pistli taldi ég mig knúinn til að fjalla aðeins um COVID-19 sem ég gerði, vitandi það að ég er enginn fræðimaður og veit ekkert um læknisfræði, smitsjúkdóma og smitleiðir. Frekar hefði ég viljað skrifa um hluti sem ég tel mig hafa aðeins meira vit á, svo sem vélar og tæki.
Í úttekt The Environmental Working Group (EWG) sem kom út á síðasta ári kemur fram að opinberar rannsóknir á tíðni baktería í stórmörkuðum sýni að tíðni sýklalyfjaónæmra baktería í kjöti sem þar er í boði er stöðugt að aukast.
Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, flutti fyrirlestur á dögunum um fæðuöryggi Íslendinga og áhrif framleiðsluhátta og uppruna matvæla á bakteríur. Þar kom fram að sýklalyfjaónæmi væri mesta ógn við lýðheilsu í heiminum í dag.
Í dag staðfesti hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Ferskra kjötvara gegn ríkinu, vegna þess að fyrirtækinu var bannað að flytja inn ferskt hrátt kjöt árið 2016.
Sýklalyf sem notuð eru í landbúnaði eru mun ódýrari en sams konar lyf sem notuð eru til lækninga á fólki. Talið er að hagnaður lyfjafyrirtækja vegna sýklalyfja til landbúnaðar sé um 5,6 milljarðar bandaríkjadala á ári, eða rúmlega 600 milljarðar króna.
Vísindadagur var haldinn föstudaginn 20. apríl á bókasafni Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum, í tilefni af 70 ára afmæli hennar á þessu ári. Meðal áhugaverðra erinda sem þar voru flutt var erindi Þórunnar Rafnar Þorsteinsdóttur um sýklalyfjaónæmi í dýrum, en þar kom fram að það væri ein stærsta ógn við lýðheilsu í heiminum í d...
Lyfjastofnun Evrópu hefur gefið út skýrslu með ítarlegri samantekt um sölu sýklalyfja fyrir dýr í 30 Evrópulöndum fyrir árið 2015. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru þær að það hefur dregið úr heildarsölu sýklalyfja í Evrópu milli áranna 2011 og 2015, eða um 13%, þótt heildarsala sé breytileg milli landa.
Þriðjudaginn 14. nóvember var kveðinn upp dómur hjá EFTA-dómstólnum. Komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að íslenska leyfisveitingakerfið fyrir innflutning á hrárri og unninni kjötvöru, eggjum og mjólk samrýmdist ekki ákvæðum EES-samningsins.
Í Skýrslu landlæknisembættisins frá september 2017, „Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería í mönnum og dýrum á Íslandi 2016“, kemur fram að sýklalyfjanotkun í landbúnaði hefur dregist saman. Sýklalyfjanotkun í landbúnaði er langminnst í Noregi og á Íslandi.
Breytingar hafa þegar orðið í smásöluverslun á Íslandi með opnun ameríska verslunarfyrirtækisins Costco í Garðabæ. Eldsneytisverð fyrirtækisins er talsvert lægra en annars staðar, þó að íbúar hinna dreifðu byggða hafi vissulega takmarkaða möguleika á að nýta sér það. Verðlag á öðrum vörum virðist í sumum tilvikum vera verulega lægra líka, þótt það...
Ekkert lát er á óhóflegri notkun sýklalyfja í evrópskum landbúnaði. Það hefur m.a. leitt til ört vaxandi aukningar sýklalyfjaónæmra baktería sem berast í fólk.
Þann 11. febrúar síðastliðinn voru birtar skýrslur Sóttvarnarstofnunar Evrópu (ECDC) og Evrópsku Matvælaöryggisstofnunar (EFSA) um stöðuna í Evrópu árið 2014 hvað varðar sýklalyfjaþol baktería í dýrum, mönnum og umhverfi.
Bakteríur sem eru ónæmar fyrir öllum þekktum sýklalyfjum hafa verið greindar í Evrópu í fyrsta sinn. Bakteríurnar greindust í sjúklingi í Danmörku en því er spáð að bakterían greinist einnig fljótlega á Bretlandseyjum.
Stjórnvöld í Kaliforníu hafa hert reglur um notkun sýklalyfja í landbúnaði verulega og eru reglurnar þær ströngustu í Bandaríkjunum. Reglurnar taka gildi í ársbyrjun 2018.
Ofnotkun og röng notkun sýklalyfja hefur leitt til ískyggilegrar aukningar sýklalyfjaónæmis á heimsvísu. Nú er svo komið að þjóðir heims verða að snúa bökum saman og sporna gegn óhóflegri notkun sýklalyfja, bæði í menn og dýr.